Texti á mannamáli
Það skiptir ekki bara máli hvað þú segir heldur hvernig þú segir það. Ef þig vantar aðstoð við textaskrif, þýðingar, ráðgjöf eða að setja efni á vefinn, hafðu samband.

Notendamiðuð textasmíði
(UX writing)
Rétt eins og með hönnun er mikilvægt að texti sé skrifaður með þann hóp af fólki í huga sem hann er ætlaður fyrir. Besta upplifunin er þegar talað er á mannamáli.
Rödd og tónn
(Tone of voice)
Rödd og tónn er stefna sem skilgreinir hvernig fyrirtæki, stofnun eða vörumerki talar við fólk og er hluti af upplifuninni. Oft skilgreind út frá gildum, vinnustofa einnig í boði.
Efnisstjórn
(Content management)
Rétta efnið þarf að birtast á réttum tíma á réttum stað. Myndir og myndbönd henta oft vel til að koma skilaboðum á framfæri eða styðja við texta. Mikilvægt er að huga að góðu aðgengi á öllu efni.
Efnisleiðarvísir
(Content guidelines)
Til að viðhalda gæðum og samræmi er nauðsynlegt að hafa skýran efnisleiðarvísi með dæmum þannig að auðvelt er fyrir starfsfólk að skrifa texta á vef fyrirtækis eða stofnunar.
Verkefni

Garðabær
Skilgreindi rödd og tón fyrir Garðabæ auk þess að skrifa texta og setja inn efni fyrir nýjan vef bæjarins sem fór í loftið í mars 2026. Vefurinn var unnin í samstarfi við Fúnksjón og Hugsmiðjuna.
Neyðarlínan
Ofbeldisgátt 112.is í samstarfi við Mennsk ráðgjöf og Hugsmiðjuna. Efnisstjórn, rödd, textasmíði og þýðingar. Áhersla var lögð á að allt efni væri auðskiljanlegt, aðgengilegt og persónulegt. Vefurinn fékk Íslensku vefverðlaunin 2020 fyrir Stafræna lausn og Verkefni ársins og fyrir Efnis- og fréttaveita 2023 auk viðurkenningar fyrir aðgengi.


Taktu skrefið
Vef- og efnisstjóri fyrir Taktu skrefið, úrræði fyrir fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi. Textaskrif og þýðingar.
Hafnarfjörður
Rödd og tónn fyrir Hafnarfjarðarbæ auk þess að skrifa texta og setja inn efni á nýjan vef bæjarins sem fór í loftið í nóvember 2022. Textagerð og efnisinnsetning fyrir vefi bæjarins: Grunnskólar, Bókasafn Hafnarfjarðar og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar. Samstarf við Metal, Avista og Sjá.

Önnur verkefni
- Lögreglan: Tilkynna netglæp á Ísland.is. Textasmíði, þýðing og efnisuppsetning í samstarfi við Mennsk.
- Umhverfis- og orkustofnun: Vinnustofa, í samstarfi við Höllu Hrund Skúladóttir, til að skilgreina rödd og tón með starfsfólki UOS og efnisleiðarvísir.
- Hafnarfjörður: Efnisuppsetning og textaskrif fyrir Workvivo, innri vef starfsfólks.
- 112.is: Leiðarvísir um réttarkerfið fyrir þolendur heimilisofbeldis.
- HMS: textavinna og efnisinnsetning á Ísland.is.
- Fangelsismálastofnun: Bæklingar um innkomu og afplánun.
- Landlæknir: Smitgátarferli og forskráning (textayfirferð og upplifunarhönnun í samstarfi við Mennsk.
- Klappir: Efnisleiðarvísir og tækniskrif.
Sendu mér línu á berglindoskbergsdottir@gmail.com.