Um mig

Ég elska að skrifa og hef mikla ástríðu fyrir því að gæða tæknilausnir mannamáli. Meðfram störfum mínum sem notendamiðaður textasmiður sinni ég ritstörfum, en áður starfaði ég sem framenda- og appforritari hjá Kolibri, QuizUp og gogoyoko.

Haustið 2019 tók ég stökkið og fór að vinna sjálfstætt, ásamt því að fara í meistaranám í ritlist við Háskóla Ísland sem ég kláraði vorið 2022. Í störfum mínum sameina ég reynsluna úr hugbúnaðarþróun og ástríðu mína fyrir að skrifa vandaðan texta sem fólk skilur.

Skrif og sköpun

Útgefnar bækur

Birt efni

  • TMM, Það sem fer upp kemur aftur niður (feb. 2022)
  • Skírnir, þýðing á smásögu: Sólrík verönd (haust 2021)
  • Þægindarammagerðinsmásaga í safni (2021)
  • Grautur, Heima, Hefðir, sögur í örsagnasöfnum ritlistarnema (2019, 2020 (ritstjóri), 2021)
  • Þrautir þýðandans, útvarpsþáttur í samvinnu við Rás 1 (2020)
  • Skandali, bókmenntagreining, smásaga, ljóð, þýðing (2019, 2020, 2021)
  • Stína, ljóð (2016, 2019)

Blogg

Ég tjái mig aðallega í skáldlegum skrifum en einstaka sinnum blogga ég.

Loddaralíðan

Ég hef haldið fyrirlestra og vinnustofur um loddaralíðan (e. impostor syndrome) undanfarin ár, hérlendis sem erlendis, sem hafa vakið mikla lukku.